Flugfélagið icelandair í mikill sókn

Forráðamenn Icelandair stefna að því að auka framboð á flugferðum félagsins um 18% á næsta ári, en tvær 262 sætja 767-300 farþegaþotur bætast í flugflota félagsins árið 2016.

Vöxtur Icelandair á síðustu misserum hefur verið ævintýri líkastur og haldist í hendur við aukinn straum ferðamanna til landsins. Eftir því hefur verið tekið hvað félaginu hefur verið stýrt af mikilli ábyrgð og framsýni á þessum uppgangstímum sem, vel að merkja, getur verið jafn erfitt að höndla og þegar kreppir að.

Félagið hefur nánast undantekningalaust sprengt áætlanir sínar á síðustu árum - og er árið í ár þar engin undantekning, en farþegavöxturinn það sem af er ári er 17%. Ef fram fer sem horfir mun félagið flytja 3,1 milljón farþega á yfirstandandi ári, sem er metfjöldi í langri sögu félagsins. 

Icelandair er nú að bæta við þremur nýjum áfngastöðum; Chicago í Bandaríkjunum, Montreal í Kanada og Aberdeen í Skotlandi og er búist við að flugferðum félagsins fjölgi um 14% á næsta ári og farþegar þess verði vart undir hálfri fjórðu milljón.