Forvígismenn Flugfélags Íslands huga í æ ríkari mæli að millialandaflugi ásamt því að sinna innanlandsmarkaðnum, en beint flug félagsins á milli Íslands og Aberdeen í Skotlandi er hafið og beint flug á Belfast á Norður-Írlandi hefst á sumri komanda.
Þetta kom fram í máli Árna Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands í lífsstílsþættinum Ferðalaginu á Hringbraut í vikunni, sem nú má sjá hér á vef stöðvarinnar, en þar sagði hann jafnframt að til greina kæmi að hefja beint flug á fleiri nágrannaborgir á komandi tímum, svo sem Bergen á vesturströnd Noregs og Newcastle í norðurrhluta Englands. Ónefnd eru þá aukin umsvif félagsins á Grænlandi þar sem ferðamennska blómstrar um þessar mundir.
Rekstur Flugfélagsins gengur vel og munar þar miklu um aukinn straum erlendra ferðalanga til Íslands en nú er svo komið að fimmtungur farþega félagsins er af erlendu bergi brotinn - og munar um minna. Þá er félagið stöðugt að vinna að nýjungum til að laga sig að breyttum ferðavenjum í landinu og hillir þar brátt undir beint flug á milli Akureyrar og Keflavíkur til að flytja erlenda ferðamenn hraðar út á land þar sem ódýrari hótelgistingu og minni túristaumferð er að finna en suðvestanlands.
Flugfélagið fagnar annars tvöföldu afmæli á þessu ári; áttatíu ár eru frá því Flugfélag Akureyrar, forveri Flugfélags Íslands hóf starfsemi sína nyrðra - og tuttugu ár eru í ár liðin frá því Flugfélag íslands í núverandi mynd varð til með samruna innanlandsdeildaer Flugleiða og Flugfélags Íslands.