Fræðsluþátturinn Fólk og flugeldar er meðal forvitnilegra þátta á jóladagskrá Hringbrautar í kvöld, en þar læra áhorfendur að umgangast skotblys af öllu tagi í samstarfi við Slysavarnafélag Íslands, einn helsta og vandaðasta seljenda skotelda á Íslandi.
Af öðru efni kvöldsins má nefna glænýjan Suðurnesjamagasínþátt þar sem sprangað er um samfélagið suður með sjó, svo og Jólabræðing Hringbrautar þar sem fram fer kennslustund í hátíðarmatseld undir stjórn Viktors Arnar, eins helsta matreiðslumeistara landsmanna.
Þá er Sögustund einnig á dagskrá í umsjá Lindu Blöndal og Sigmundar Ernis sem að þessu sinni fá helsta fjölmilamógul Íslendinga frá fyrri tíð í betri stofuna, Svein R. Eyjólfsson, útgefanda Vísir, Dagblaðsins og síðar DV, en með honum í för eru Silja Aðalsteinsdóttur, ævisagnaritari Sveins og Jónas Haaldsson sem vann með Sveini á blöðum hans um áratugaskeið.
Dagskráin er annars þessi: Sögurnesjamagasín kl. 20:00, Sögustund kl. 20:30, Jólabræðingur kl. 21:00 og Fólk ogg flugeldar kl. 21:30.