Amerískur flugdólgur var yfirbugaður af fimm íslenskum lögreglumönnum eftir að flugvél Icelandair lenti á Keflavíkurflugvelli um miðnætti í gær, en greiðlega gekk að handtaka manninn þótt hann veitti mikla viðspyrnu.
Maðurinn varð ofurölvi á flugleiðinni yfir hafið og hafði í hótunum við starfsfólk vélarinnar og flugfarþega í grennd. Eftir því sem leið á flugið ágerðist dólgsháttur mannsins og var hann um skeið farinn að áreita flugfreyjur um borð.
Ákveðið var því að kalla til lögreglu til að taka hann til fanga við lendingu - og voru fimm vasklegir lögreglumenn sendir á vettvang. Engin meiðsli á fólki hlutust við handtökuna, önnur en þau að dólgurinn sjálfur mun hafa marist.
Hann sefur nú úr sér vímuna í fangaklefa lögreglunnar, en má búast við ríflegum sektum fyrir dólgslætin.