Flug­far­gjöld hækka um 23%

Verðbólga mæld á tólf mánaða tíma­bili er 2,7% og er því yfir verðbólgu­mark­miðum Seðlabanka Íslands ann­an mánuðinn í röð. Vísi­tala neyslu­verðs hækkað um 0,04% í júlí þrátt fyr­ir sumar­út­söl­ur. Vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis  lækk­ar aft­ur á móti um 0,26% frá júní 2018.

Sumar­út­söl­ur hafa víða verið í gangi og lækkaði verð á föt­um og skóm um 11,3% (áhrif á vísi­töl­una -0,41%). Kostnaður vegna bú­setu í eig­in hús­næði (reiknuð húsa­leiga) hækk­ar um 1,0% (0,22%). Flug­far­gjöld til út­landa hækka um 23,0% (0,31%).

Nánar á

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2018/07/23/flugfargjold_haekka_um_23_prosent/