Flötur fyrir nýjum miðjuflokki

„Mitt bakland hristir höfuðið yfir því þegar ég er að tala um Sjálfstæðisflokkinn,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrum þingmaður og menntamálaráðherra í Fréttablaðinu.

Hún telur rými fyrir stofnun nýs miðjuflokks á Íslandi og sætir tíðindum að inngrónir sjálfstæðismenn tali með slíkum hætti.

„Ég viðurkenni það alveg að fólk skilur ekki að ég sé enn þá að tala fallega um flokkinn. Ég trúi því að menn vilji enn þá hafa hann sem ríkjandi afl. Ef það gerist hins vegar ekki, ég ætla ekki að draga dul á það, þá er greinilega flötur fyrir sterku miðjuafli, sem er framsýnt og frjálslynt. Sem þarf ekki að taka tillit til einhverra hagsmuna úti um allt, heldur verður það líka frjálst og óháð. Hvort sem það er Evrópusinnað eða ekki.“

Þorgerður Katrín þakkar Bjarna Ben það persónulega að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki í „mun verri málum“ eins og hún orðar það. „Eftir stendur að það er óánægja innan flokksins og menn vilja sjá tekið raunverulega á málum sem hafa verið tabú innan flokksins.“

Spurð um þessi tabú nefnir hún landbúnaðarmálin: „Við tölum um frelsi í aðra röndina en þegar til kastanna kemur þá trúum við ekki á það á landbúnaðarsviðinu. Hvar hefur frelsið nýst okkur? Til dæmis til mestu verðmætasköpunar í íslenskri samfélagssögu, í sjávarútvegi. Þar er algjört frelsi, þar eru engir ríkisstyrkir. Þar er búið að byggja upp þannig að menn þurftu að hagræða í greininni á sársaukafullan hátt en eftir stendur að við erum með arðbæran sjávarútveg í landinu.“

Rangt að tala Pírata niður

Í gær var birt skoðanakönnun sem sýnir að Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi en Píratar hafa aldrei mælst sterkari. Mjög hefur þó verið sótt að Pírötum t.d. af hálfu Davíðs Oddssonar ritstjóra Moegublaðsins en Þorgerður Katrín telur ekki rétt að tala Pírata niður.

„Ég held það sé margt mikilvægt sem við eigum að læra af því sem Píratar eru að setja fram, margt sem maður er ósammála, en margt áhugavert og eftirtektarvert. Og framkoma þeirra margra mjög til eftirbreytni. Eins og Helgi Hrafn í þinginu og Halldór Auðar í borginni.“

 Allt viðtalið í Fréttablaðinu má lesa á visir.is hér.