Flottustu mótorhjól landsins skoðuð

Sjónvarpsþátturinn Kíkt í skúrinn tekur skransinn um Eyjar á Hringbraut í kvöld en Landsmót bifhjólamanna fór fram í Heimaey að þessu sinni og settu mótorfákar landsmanna glæsilegan svip sinn á sjávarbæinn, en hjólamenning á sér ríka sögu þar um slóðir.

Jói Bachmann kíkir meðal annars í skúrinn til Gunnars Darra Adolfssonar sem á mörg glæsileg hjól í sínu safni, þar af eitt sem hefur verið í hans eigu í 30 ár. Þann góða grip hefur hann gert upp og stendur hann stórglæsilegur inn í skúr. Einnig lumar Gunni á Hondu Goldin wing 1000 með hanskahólfi, boxermótor og drifskafti af árgerðini 1977, en græjan, sem er sú eina sinnar tegundar sem til er í landinu, er á leiðinni í uppgerð.

Mótorhjólaáhugi Gunna varð til þegar hann var að hjálpa frænda sínum með mótorhjól, en frænda hans fannst hann svo duglegur að hann launaði stráksa hjálpina með Hondu ss50 1974. Eftirleikinn þekkja margir í bransanum, en Gunni á í dag fjöldann allan af einstökum og glæsilegum hjólum.

Jói verður líka með viðtal við snigil númer 1, Hilmar Lútersson en hann er lika einn af stofnendum Sniglanna. Einnig er spjallað við Birgi Jónsson en hann er númer 5 hjá Drullusokkum og einn af stofnendum þess félagsskapar - og eru þar komnir tveir góðir með delluna á hreinu.

Í þættinum er fylgst með fyrstu skellinöðruspyrnunni sem haldin hefur verið í Eyjum. Hún var býsna spennandi þar sem Tryggvi Beikon bar sigur úr býtum í sögulegri viðureign á malbikinu í Eyjum.

Þátturinn Kíkt í skúrinn er frumsýndur klukkan 20:30 í kvöld.