Flótti launafólks hluti skýringar

„Mér sýnist í fljótu bragði að megin skýringin á því, að heildargreiðslur TR vegna lífeyris og bóta hafi hækkað meira en heildargreiðslur í laun sé vegna meiri fjölgunar þeirra sem fengu greiðslur frá TR á þessum tíma,“ segir Stefán Ólafsson, stjórnarformaður Tryggingastofnunar.

Hringbraut bar frétt gærdagsins undir Stefán, þar sem fram kom að greiðslur frá Tryggingastofnun hafa hækkað um 27,2% að raunvirði frá árinu 2010 en laun um 14,4%. Rekstrarhagfræðingur hjá Ríkisskattstjóra sagði í Morgunblaðinu að þeim sem fái bætur frá Tryggingastofnun hafi fjölgað um 8.815 2010-2014 eða tæp 20%. Á sama tíma hafi launafólki fjölgað um 3,8%. Laun hafi hækkað um 6,1% en greiðslur frá Tryggingastofnun um 6,1%.

Stefán Ólafsson segir nánar um þetta: „Lífeyrisþegum fjölgar meira en öðrum vegna hækkunar meðalaldurs þjóðarinnar og svo varð aukið atvinnuleysi í kreppunni og talsverður brottflutningur launafólks, sem hélt aftur af hækkun launaliðarins á þeim árum.“

Hann áréttar vegna samanburðarins. \"Þessar tölur segja ekkert um hvort kjör lífeyrisþega hafi batnað örar eða hægar en kjör launafólks, einmitt vegna hins breytilega fjölda sem er á bak við tölurnar.\"