Þrjár fjölskyldur sýrlenskra flóttamanna sem búist var við að myndu koma til Íslands frá Beirút í dag hafa hætt við að koma. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins en engin skýrin er gefin.
Fyrsti hópur sýrlenska flóttafólksins sem kemur í dag samanstendur af sex fjölskyldum, þar af eru 13 fullorðnir og 22 börn, alls 35 manns. Þetta er töluvert undir þeim fjölda sem búist var við en alls var rætt um 55. Skýrist það að hluta af því að ófrísk kona treysti sér ekki til að koma að svo stöddu og situr hún og fjölskylda hennar áfram í Beirút eitthvað lengur. Hin skýringin er að „Þrjár fjölskyldur til viðbótar sem höfðu lýst áhuga á að setjast að á Íslandi hættu við að koma,“ segir á vef velferðarráðuneytisins.
Fjórar þessara fjölskyldna munu setjast að á Akureyri en tvær þeirra í Kópavogi. Ráðgert var að fólkið kæmi til landsins í lok desember sl. en ekkert varð af því.
Af fjölskyldunum sex sem koma á morgun munu fjórar þeirra setjast að á Akureyri, samtals 23 einstaklingar, en tvær í Kópavogi.
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur í samvinnu við íslensk stjórnvöld undirbúið komu hóps flóttafólks í stað þeirra sem sáu sér ekki fært að koma. Stefnt er að því að sá hópur komi innan fárra vikna og að fólkið setjist að í Hafnarfirði og Kópavogi.
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir gleðiefni að loksins sé komið að því að bjóða flóttafólkið velkomið í verki:
„Ég veit að sveitarfélögin hafa undirbúið sig vel á allan hátt og munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að fólkinu líði vel og finni að það er meðal vina. Rauði krossinn mun miðla af reynslu sinni og þekkingu í sama skyni og það er virkilega ánægjulegt að vita hvað sjálfboðaliðar hafa reynst boðnir og búnir að bjóða fram stuðning sinn og aðstoð við að taka á móti fólkinu og aðstoða það meðan það er að átta sig á aðstæðum hér og kynnast samfélaginu.“