Flóttafólki fagnað í þýskalandi

Fjöldi fólks með gjafir, lófatak og húrrahróp tók á móti flóttafólki sem kom með lest á aðalbrautarstöðina í Frankfurt í Þýskalandi í morgun. Talið er að minnsta kosti átta þúsund flóttamenn hafi komið til Þýskalands í gegnum Austurríki og Ungverjaland í gær.
 

Búist er við því að annar eins mannfjöldi komi til landsins í dag, en segja má að flokkar flóttafólks liðist um þjóðleiðina frá Grikklandi og upp eftir austanverðri Evrópu til Þýskalands um þessar mundir. Viðtökurnar í Þýskalandi og fleiri Evrópuríkjum síðustu daga hafa hvatt margt flóttafólk til dáða.  

Á fréttavef RÚV er sagt frá því að fólk hafi safnast saman á brautar- og rútustöðum víða um Þýskaland til að bjóða flóttafólkið velkomið. Stjórnvöld í Þýskalandi og almennir Þjóðverjar hafa verið hylltir víða um heim allan fyrir að taka flóttafólkinu opnum örmum. Angela Merkel þykir í þeim efnum vera móðir Teresa endurborin eins og haft var á orði í frönskum fjölmiðlum í gærdag.

Fréttastofa AP segir þó frá því að ágreiningur sé í þýsku stjórninni um hvernig bregðast eigi við flóttamannastrauminum. CSU, bæverskur systurflokkur Kristilegra demókrata, flokks Angelu Merkel kanslara, hefur gagnrýnt þá ákvörðun að leyfa flóttamönnum að ferðast óhindrað frá Ungverjalandi til Þýskalandi.

Jafnaðarmannaflokkurinn, þriðji flokkurinn í samsteypustjórn Merkel, leggur hinsvegar áherslu á að koma flóttamönnum sem hrekjast um Evrópu til hjálpar eins og fljótt og auðið er.