Meðal helstu breytinga sem nú hafa verið gerðar á úthlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir námsárið 2018-2019 eru að framfærslugrunnur námsmanna innanlands hækkar og einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar eða hafa dvalarleyfi á Íslandi vegna mannúðarsjónarmiða eiga rétt á námslánum.
Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur samþykkt endanlegar úthlutunarreglur fyrir námsárið 2018-2019 og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra staðfest þær: „Við styrkjum stöðu allra námsmanna með því að hækka framfærslugrunn LÍN, og það eflir íslenskt samfélag að fólk sem dvelst hér hafi tækifæri til að mennta sig,“ segir ráðherra í tilkynningu frá L\IN.
Framfærslugrunnur námsmanna innanlands hækkar úr 92% af reiknaðri framfærslu þeirra í 96%. Þannig er ráðgert að ráðstöfunartekjur námsmanna standi aðeins undir 4% af reiknaðri framfærsluþörf þeirra á námstímanum í stað 8% áður.
Einstaklingar sem fengið hafa alþjóðlega vernd hér á landi eða hafa dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eiga nú rétt á námslánum hjá lánasjóðinum séu þeir komnir til landsins og staðfesting Útlendingastofnunar á réttarstöðu þeirra eða dvalarleyfi liggi fyrir.
Sjá nánar: Úthlutunarreglur Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir námsárið 2018-2019