Sá eitilbeitti fjaðurstafur sem Jónas Kristjánsson er vandar Sjálfstæðisflokknum ekki kveðjurnar að afloknum landsfundi og segir hann sitja fastan við sitt gamla og gauðslitna heygarðshorn.
\"Landsfundurinn staðfesti, skrifar Jónas \"að Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki áhuga á að breyta stjórnarskránni og vill ekki endurheimta þjóðareign auðlinda,\" en pistilinn atarna er sem fyrr að finna á vefsvæði gamla ritstjórans, jonas.is.
\"Flokkurinn verður því ekki með pírötum í ríkisstjórn þeirra, þótt sumir hafi gamnað sér við þá fráleitu hugsun,\" skrifar hann áfram og bendir á afleiðingarnar: \"Píratar verða að díla til vinstri, hvort sem þeim líkar betur eða verr.\"
Og svo kemur sneiðin til hans gamla flokks, sem Jónas hefur yfirgefið fyrir margt löngu: \"Sjálfstæðisflokkurinn verður áfram bófaflokkurinn, helzta fyrirstaðan á þroskabraut þjóðarinnar. Að öðru leyti skipta samþykktir landsfundarins engu, ekki frekar en nokkru sinni áður. Ungliðahreyfing flokksins fékk sinn landsfund og getur farið heim. Hún hefur ekkert fylgi út fyrir fjölskyldurnar fjörutíu.\"
Og hana nú.