Flokkurinn traðkar á þingræðinu

Jón Sigurðsson fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins tekur undir gagnrýni Valgerðar Sverrisdóttur fyrrverandi formanns flokksins sem fram kemur í nýjum pistli hennar hér á hringbraut.is þess efnis að flokkur þeirra hafi traðkað á lýðræðinu og þingræðinu með umdeildu ráðslagi sínu í ESB-málinu á fimmtudag. Þá sendi Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðaherra forkólfum Evrópusambandsins bréf um formleg lok á samningaviðræðum Íslands við sambandið, en svo virðist sem um einhvers konar bænaskjal sé að ræða sem sérfræðingar hafa átt mjög erfitt að átta sig á hvaða lagatæknilegu áhrif hafa á stöðu Íslands gagnvart ESB.


Jón Sigurðsson telur þessi vinnubögð vera aðför að stjórnskipun Íslands; í reynd hafi ríkisstjórnin troðið á henni eins og hann orðar það í samtali við Fréttablaðið í dag. "Að mínu viti er þetta grófara en þegar ákveðið var að setja Ísland á lista hinna viljugu þjóða í stríðinu gegn Írak."


Hann segir alveg ljóst að bréf Gunnars Braga Sveinssonar breyti engu um það að Evrópusambandsaðildin sé í sama hægagangi og henni var komið í á síðustu vikum Össurar Skarphéðinssonar á stóli utanríkisráðherra, frá sjónarhorni ESB hafi málið verið lagt til hliðar en ekki tekið af dagskrá.