"Í mínum huga er það algerlega ljóst að ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að heimila þjóðinni aðkomu að ákvörðun um Evrópusambandið eins og margsinnis var lofað fyrir kosningar þá heitir það að ganga á bak orða sinna," sagði Ragnheiður Ríkharðsdóttir í nýjasta þætti Þjóðbrautar á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Hægt er nálgast klippu þessa efnis hér á forsíðu hringbrautar.is, eins og öll önnur fréttnæm ummæli sem falla í þáttum sjónvarpsstöðvarinnar.
Þessi forystumaður Sjálfstæðisflokksins bætti við þessi ummæli sín: "Kjósendur eru ekkert tilbúnir að kaupa svona lagað, kannski einkanlega kjósendur Sjálfstæðisflokksins sem eiga því að venjast að flokkurinn standi við orð sín."
Stjórnmála- og fréttaskýringaþátturinn Þjóðbraut í umsjá Páls Magnússonar er á dagskrá Hringbrautar á fimmtudögum kl. 21.00.
Flokkurinn standi við orð sín
Fleiri fréttir
Nýjast