Flokkurinn sem stal senunni

Það var engin lognmolla í spjalli ritstjóranna í samnefndum þætti á Hringbraut í vikunni þar sem farið var yfir hið pólitíska svið, en þeir sem tóku til máls í gærkvöld eru sammála um að Sjálfstæðisflokkurinn hefði átt sviðið um helgina - og fundur VG að nokkru fallið í skuggann af honum.

Þáttinn er hægt að skoða í klippum eða í heild hér á hringbraut.is, en þar sitja þeir Andri Ólafsson, ritstjóri Íslands í dag og Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri Nútímans ekki á skoðunum sínum í samtali við þriðja ritstjórann, Sigmund Erni Rúnarsson en allir reynast þeir vera sammála um að Sjálfstæðisflokkurinn hafi átt hið pólitíska svið um helgina eftir vel heppnaðan landsfund þar sem ferskleiki og frjálsyndi loftuðu rækilega út í starfi flokksins. Í samtali þremenninganna er það orðað svo að unga fólkið í flokknum hafi loksins verið búið að fá alveg nóg - og jafn vel upp í kok - af gömlu frethólkunum sem reglulega hafi skilið eftir sig vonda lykt innan flokksmúrsins - og nú hafi reykfyllt bakherbergin að mörgu leyti verið hreinsuð út.

Ritstjórarnir eru hins vegar sammála um að enn taki flokkurinn helstu hagsmuni útvalinna fram yfir frjálslyndið í veigamiklum atriðum; hann vilji hvorki sjá frjáls viðskipti til sjávar né sveita og sé þar að mörgu leyti ennþá sama afturhaldið. Á hitt beri þó að líta að flokkurinn hafi styrkt sig í frjálsræðisátt - og beri þar hæst skorinorð ályktun fundarins um að leita allra leiða til að taka upp nothæfan gjaldmiðil, en þar hafi fundurinn sjálfur farið fram úr ræðu formannsins í upphafi landsfundar - og svo megi ekki gleyma senu fundarins þar sem ungliðar, studdir af Eyjamönnum, kváðu rasistatilburði stöku flokksmanns í kútinn með eftirminnilegum hætti.