Flokkurinn hallar sér að rússlandi

Þjóðmálarýnirinn orðhvati, Jónas Kristjánsson segir augljóst að Sjálfstæðisflokkururinn undir forystu Bjarna Benediktssonar sé farinn að halla sér meira að Rússlandi en Bandaríkjunum og sé þannig að hverfa frá vestrænum lýðræðisgildum.

Þetta kemur fram í pistli hans á jonas.is: \"Á tíma Bjarna Ben fólst utanríkisstefna Flokksins í læstu fylgi við Bandaríkin og Nató,\" skrifar gamli ritstjórinn og bætir við. \"Byrjaði að breytast, þegar Bandaríkin lokuðu herstöðinni á Vellinum, þrátt fyrir ímyndaðan vinskap Bush og Davíðs. Grátur og gnístran tanna fengu því ekki breytt.\"

Jónas, sem eitt sinn studdi Sjálfstæðisflokkinn segir að breytingin á utanríkisstefnu flokksins hafi byrjað í formannstíð Davíðs Odssonar: \"Síðan leitaði Davíð í fang Pútíns Rússakeisara og þóttist hafa reddað þúsund milljarða láni þar á bæ. Reyndist bara ímyndun hans. Nú er hann málgagn kvótagreifa, heimtar felldar niður viðskiptahömlur á Rússa. Flokkurinn tvístígur í málinu. Er kominn á fremsta hlunn með að taka upp fylgispekt við Rússa, hinn forna óvin.\"

Og Jónas hugsar sem svo hvort íhaldið hreyfist nú meira í vindi en Framsókn og segir: \"Vantreystið þeim, sem hagar seglum eftir vindi meira en Framsókn.\"