\"Sjálfstæðisflokkurinn er ekki flokkur þeirra, sem eru ríkir, heldur flokkur þeirra, sem vilja verða ríkir eða að minnsta kosti bjargálna og sjálfstæðir. Hann er flokkur möguleikanna.\"
Með þessum orðum skilgreinir Hannes Hólmsteinn Gissurarson Sjálfstæðisflokkinn, en um langt árabil hefur hann verið helsti hugmyndasmiður flokksins og áhrifamaður í innsta ranni hans. Fyrri skilgreining hans á hægrimönnum er landsfræg, sumsé í þá veru að þeir vilji græða á daginn en grilla á kvöldin, en hún féll í samtali hans og Sigmundar Ernis á Stöð 2 fyrir mörgum árum.
Hann lofar landsfundinn og nýja forystu í grein sem hann birtir á Eyjunni í dag, en minnir unga sem aldna á sögulegt erindi flokksins: \"Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður til að verjast yfirgangi Jónasar Jónssonar frá Hriflu og manna hans, og síðan ógnuðu kommúnistar því borgaralega skipulagi frelsis og fjölgunar tækifæra, sem flokkurinn studdi. Kalda stríðið var háð í fullri alvöru. Eftir fall kommúnismans tók við vaxtarskeið, sem lauk snögglega í fjármálakreppunni 2007–2009, en hún hafði víðtækar afleiðingar hér á landi. Nú er aftur komið góðæri, og margir telja það fyrirhafnarlaust, sjálfsagt. En svo er ekki. Berjast verður fyrir frelsinu, fyrir hagsmunum skattgreiðenda og neytenda, á hverjum degi,\" skrifar stjórnmálafræðingurinn næsta vígreifur.
Hann segist aðeins gera eina athugasemd við samþykkt landsfundarins: \"Þeir, sem vilja skoða upptöku erlendrar myntar til að tryggja stöðugleika í peningamálum, virðast fæstir hafa hugsað út í það, að við tókum einmitt upp aðra mynt fyrir nokkrum áratugum: Á Íslandi eru notaðir tveir gjaldmiðlar, óverðtryggð króna í venjulegum viðskiptum og verðtryggð króna í langtímaviðskiptum. Afleiðingin af því að taka upp erlendan gjaldmiðil, til dæmis Bandaríkjadal eða evru, væri svipuð og af því að nota verðtryggða krónu í öllum viðskiptum. Þá væri til dæmis ekki hægt að lækka laun og annan tilkostnað fyrirtækja óbeint með verðbólgu og falli venjulegu krónunnar, heldur yrðu launþegar annaðhvort að sætta sig við launalækkun eða hér yrði verulegt atvinnuleysi,\" skrifar Hannes að loknum landsfundi.