Flokkur fólksins vill orkupakkann í þjóðaratkvæðagreiðslu: leggja fram breytingartillögu

Guðmundur Ingi Kristinssonar, þingflokksformaður Flokks fólksins segir í samtali við Morgunblaðið að flokkurinn ætli að leggja fram breytingartillögu um að málinu verði vísað í þjóðaratkvæðagreiðslu. En atkvæði verða greidd um þriðja orkupakkann á þingi í dag. Guðmundur segir:

„Með þessu værum við búin að tryggja þetta eins vel og hægt er. Ég vona að þetta verði samþykkt, það er það eina rétta. Þing getur ákveðið eitthvað þótt það sé ekki meirihluti fyrir því hjá þjóðinni. Þetta er það stórt mál að þjóðin á að fá að ráða þessu.“

Þá segir Hanna Katrín Friðriksdóttir þingflokksformaður Viðreisnar að tímabært sé að setja punkt aftan við þessa umræðu alla:

 „Það hefur ekkert komið fram sem breytir þeirri skoðun okkar að þetta sé hið ágætasta mál [...] Efnislega er umræðan löngu tæmd en það eru miklar tilfinningar í spilinu þannig að þetta gæti tekið einhvern tíma,“ segir Hanna Katrín, sem segir óhætt að fullyrða að meirihluti sé á þingi fyrir málinu.