Inga Sæland var af mörgum talin sigurvegari leiðtogaumræðna RÚV í gærkveldi. Hún sýndi miklar tilfinningar undir lok þáttarins þegar hún brast í grát vegna bágrar stöðu fátækra, öryrkja og aldraðra. Almennt er talið að hún hafi með þessu hrifið fjölmarga kjósendur sem fundu til samstöðu með henni.
Í skoðanakönnunum síðustu daga hefur Flokkur fólksins mælst úti en einungis vantað innan við eitt prósent í viðbót til að fá menn kjörna á þing.
Margir telja að Inga hafi náð því sem upp á vantaði með framgöngu sinni á RÚV. Sé það rétt, mun það breyta miklu um skiptingu þingsæta sem gæti orðið eftirfarandi:
Sjálfstæðisflokkur 17 þingmenn, VG 12, Samfylking 9, Viðreisn 6, Framsókn 6, Miðflokkurinn 5, Píratar 5 og Flokkur fólksins 3.
Yrðu þetta úrslit kosninganna kæmu nokkrir möguleikar á stjórnarmyndun til greina. Dæmi um það væri hægri stjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Miðflokksins sem þyrfti þó viðbót frá miðjunni, Samfylkingu eða Viðreisn. Eins væri unnt að mynda miðju-og vinstristjórn með Samfylkingu, Viðreisn, VG og Framsókn.