Flokkur fólksins á móti rýmri heimildum til þungunarrofs

„Við í þingflokki Flokks fólksins hyggjumst beita okkur mjög ákveðið gegn því að fóstureyðingafrumvarpið nái fram að ganga í óbreyttri mynd. Kjarninn í okkar afstöðu er að heimild til fóstureyðingar verði áfram bundin við 12. viku meðgöngu.“

Þetta segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í fréttatilkynningu.

Þar segir að í dag hafi minnihlutaáliti og breytingartillögu Flokks fólksins verið dreift á Alþingi. Nefndarálitið með breytingartillögu varðar frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um þungunarrof, sem verður tekið til 2. umræðu í þinginu nú síðdegis.

Í álitinu segir meðal annars: „Með frumvarpinu er lagt til að fóstureyðingar verði heimilar til loka 22. viku þungunar. Í gildandi lögum er kveðið á um að fóstureyðingar skuli framkvæma helst fyrir lok 12. viku meðgöngutímans og aldrei eftir 16. viku, nema fyrir hendi séu ótvíræðar læknisfræðilegar ástæður og lífi og heilsu konunnar stefnt í meiri hættu með lengri meðgöngu og/eða fæðingu eða að miklar líkur séu á vansköpun, erfðagöllum eða sköddun fósturs. Ekki eru slíkir fyrirvarar í frumvarpinu og því heimilar frumvarpið fóstureyðingar í öllum tilvikum til loka 22. viku.“

Telur Flokkur fólksins þessa útvíkkun heimildar til þungunarrofs algjörlega óverjandi, siðferðilega ranga og ganga gegn lífsrétti ófæddra barna.