Flokki fólksins ekki boðið á samtalsfund

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir flokkinn þann eina sem ekki hafi fengið boð á samtalsfund þingmanna og borgarfulltrúa, sem nú fer fram í Höfða í boði Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Hún mótmælir slíkum vinnubrögðum harðlega og segir enga afsökun finnast fyrir mismunun af þessu tagi.

Í stuttri yfirlýsingu segir hún:

„Í þessum skrifuðu orðum, er nýhafinn fundur í Höfða í boði Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Þetta mun vera  samtalsfundur þingmanna og borgarfulltrúa.  Allir sitjandi þingflokkar á  Alþingi Íslendinga hafa fengið slíkt boð fyrir utan Flokk fólksins.  Hér með mótmæli ég þessum vinnubrögðum harðlega. Það finnst engin afsökun fyrir þessari mismunun. Flokkur fólksins á bæði fulltrúa á þingi og í borgarstjórn.“