Samþykkt var í dag breytingarfrumvarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra. Flutningsmenn þess voru fulltrúar allra flokka á þingi, þau Bjarni Benediktsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Logi Einarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Felur frumvarpið meðal annars í sér að þakið á fjárframlögum einstaklinga og lögaðila til stjórnmálaflokka er hækkað, auk þess sem framlag ríkisins til stjórnmálaflokka er hækkað um 20 prósent. Í fyrra hækkaði framlagið í heildina til stjórnmálaflokka úr 286 milljónum í 648 milljónir.
Þá var einnig samþykkt frumvarp um fjölgun aðstoðarmanna þingmanna, sem felur í sér um 150 milljóna kostnað á ári, fyrir 17 aðstoðarmenn til viðbótar við þá sem fyrir eru.
Engin greining, bara skömm
Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands, segir skömm Alþingis botnlausa:
„Eitt mál. Þingið var að samþykkja með dynjandi lófataki að fjölga aðstoðarmönnum þingmanna og auka framlag ríkis- og sveitarsjóða til stjórnmálaflokka. Að baki þessu liggur engin þarfagreining, engin rannsókn eða gaumgæfilegt mat; aðeins óskalisti frá framkvæmdastjórum flokkanna um það sem þá vantar til að borga skuldirnar eftir síðustu herferð með formönnunum á öllum strætóskýlum og með ávörp í auglýsingatímum sjónvarpsstöðvanna. Þegar fátækt fólk biður um réttlæti, öryrkjar eða eftirlaunafólk; er það ekki afgreitt svona fljótt. Þá þarf að skipa sautjándu nefndina til að kanna hvort fólk hafi það ekki bara fullgott langt undir fátækramörkum. Skömm Alþingis er botnlaus. Og allra þeirra flokka sem þar sitja, enginn þeirra hafði dug til að segja að það væri margt ofar á forgangsröð stjórnvalda en að auka enn, aftur og nýbúið við fjáraustur flokkanna úr sameiginlegum sjóðum.“