Flokkar þiggi ekki fé fyrirtækja

Vinstri græn vilja banna öll fjárframlög fyrirtækja til stjórnmálaflokka og kjörinna fulltrúa. Áfram verði einnig hámark á fjárframlögum frá einstaklingum.

Þetta kemur fram í drögum að nýrri stefnu flokksins sem eyjan.is greinir frá í dag, en hún verður tekin til afgreiðslu á landsfundi hans um komandi helgi. Um er að ræða kafla um lýðræði þar sem snert er á ýmsu. Meðal annars er þar gerð krafa um að heildarendurskoðun stjórnarskráinnar verði lokið, að auka þurfi aðkomu almennings að mikilvægum málum, til dæmis með slembivali, og koma því þannig fyrir að almenningur geti átt frumkvæði að málum, til dæmis með því að leggja fram formlegar tillögur á Alþingi, á sveitarstjórnum eða innan stjórnsýslunnar.

Þá segir einnig í drögunum að fjölmiðlar séu undirstaða lýðræðis. Stjórnvöldum beri að verja sjálfstæði þeirra og ritstjórnarlegt frelsi. Sökum þess að fjölmiðlar þurfi að hafa fjárhagslega burði til að sinna lýðræðishlutverki sínu er æskilegt að hið opinbera styðji við starfsemi þeirra, án þess að vega að sjálfstæði þeirra „með takmörkunum á fjárveitingum, hótunum eða annarri valdbeitingu.“