Þau ummæli Páleyjar Borgþórsdóttur, lögreglustjórans í Vestmannaeyjum um að enginn hafi orðið fyrir líkamstjóni á Þjóðhátíð um helgina, þegar fyrir liggur að þrjár konur þar leituðu til neyðarmóttöku vegna nauðganga, hafa vakið reiði og hneykslan.
Páley lét ummæli sína falla í samtali við RÚV í gær og verða þau ekki túlkuð á annan veg en að hún telji nauðgun ekki flokkast sem líkamstjón. Aðspurð um fréttatilkynningu frá lögreglunni þar sem sagði að hátíðin hefði farið vel fram og á hverju það mat byggir, svaraði Páley: \"Það að hátíðin hafi farið vel fram tekur yfir hátíðina í það heila. Hér eru fimmtán þúsund manns. Hér varð enginn fyrir alvarlegu líkamstjóni. Við vorum ekki með nein höfuðkúpubrot eða slíkar stórkostlega alvarlegar líkamsárásir. Vopnamál voru engin og hér var tiltölulega mikill friður yfir fólkið. Vissulega komu upp þessi tvö kynferðisbrotamál. Ég ætla ekki að gera lítið úr því. Það er grafalvarlegt og alvarlegar afleiðingar sem þau valda en engu að síður í svona stórum hópi fólks var tiltölulega mikill friður yfir fólki og hátíðin fór, miðað við fyrri hátíðir, nokkuð vel fram þrátt fyrir þessi ömurlegu kynferðisbrot.\"
Vefmiðilinn Stundir minnir á það í dag í þessu samhengi að kynferðisbrot séu á meðal alvarlegustu brota sem hægt er að fremja samkvæmt íslenskum hegningarlögum og þau varði allt að sextán ára fangelsi. Í ársskýrslu Stígamóta sé ítarleg útlistun á afleiðingum kynferðisbrota. Þar segi að þolendum nauðgana gangi misvel að komast yfir afleiðingar ofbeldisins og ná aftur fullri stjórn á lífi sínu. Þeir sem þangað leiti lýsi líðan sinni á meðan nauðguninni stendur oft við það að vera í einangrandi tómi, þar sem tilfinningin um einmannaleika er sterkust. Að tilfinningin sé eins og að missa alla stjórn á lífi sínu og aðstæðum. Því fylgi mikill ótti og ásækin tilfinning um að vera í lífshættu. Fórnarlömbin velji þá leið til að lifa árásina af, líkamlega og tilfinningalega, sem aðstæður og mat þeirra á þeim leyfir.
Þá segir að afleiðingarnar séu margvíslegar og mismunandi hjá hverjum og einum. Algengt sé að þolendur fái líkamleg áfallseinkenni eins og martraðir, höfuðverki, ýmiskonar verki, kláða, uppköst, skjálfta og önnur áfallseinkenni. Þá glími þeir við ýmis vandamál er varða andlega heilsu þeirra, brotna sjálfsmynd, skömm og sektarkennd. „Nauðgun hefur svo djúpstæð áhrif á tilfinningalíf kvenna og sjálfsmynd þeirra, að þeim tekst sjaldnast að gleyma henni án þess að tilfinningaleg úrvinnsla eigi sér stað,“ segir í ársskýrslu Stígamóta.
\"Helstu eftirköst nauðgana sem konur glíma við eru brotin eða skert sjálfsmynd, sektarkennd, erfiðleikar í kynlífi og þunglyndi. Flestum konum sem er nauðgað finnst að nauðgunin spilli þeim, þær séu annars flokks, „skemmd vara“ eftir nauðgunina. Sjálfsmat þeirra og sjálfsmynd riðlast og traust þeirra á körlum bíður oft varanlega hnekki.“