Flokkar með orðum megasar

Daði Ingólfsson tölvunarfræðingur hefur greint stöðu stjórnmálaflokkanna með vísun í heiti á plötum Megasar. Niðurstaða hans er þessi:

Björt Framtíð: Drög að sjálfsmorði

Framsóknarflokkurinn: Fram og aftur blindgötuna

Viðreisn: Bláir draumar

Sjálfstæðisflokkurinn: Aðför að lögum

Flokkur Fólksins: (Hugboð um) Vandræði

Miðflokkurinn: Höfuðlausnir

Píratar: Á bleikum náttkjólum

Samfylkingin: Greinilegur púls

Vinstri græn: Í góðri trú

Ekki verri stjórnmálaskýring en hver önnur og viðeigandi nú þegar stefnir í bókmenntasinnaðasta alþingi sögunnar