Flókið verkfall sjómanna

Verkfallið hefur staðið í 7 vikur. Í nýrri skýrslu Sjávarklasans segir að sem lengra sem líður á verkfallið geti tapið á dag allt að 900-1300 milljónum króna þegar tekið er tillit til allra sem hafa tekjur af sjávarútvegi. Það er því mikilvægt að venjulegur leikmaður glöggvi sig á aðalatriðum deilunnar.

Kjaramál sjómanna eru þannig að sjómenn búa jú við svokallað hlutaskiptakerfi sem ákveður laun þerra en ekki föst laun. Þannig fær sjómanður hlutdeild í því aflaverðmæti sem skip kemur m með að landi, ef vel fiskast og gengið er hagstætt eru meiri laun. En þar með er ekki öll sagan sögð.

Inn í þetta koma hlutir eins og olíverðsviðmið og nýsmíðaákvæði sem eru í samningum sjómanna og útgerða.

Haukur Þór Hauksson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, aðildarfélags í Sjómannasambandi Íslands.

Sjómenn hafa verið samningslausir frá árslokum 2010 og í tvígang fellt nýja samninga.