Icelandair flutti vopn Landhelgisgæslunnar ólöglega úr landi að því er fullyrt var í fréttaþættinum Speglinum á RÚV í gærkvöld, en deginum áður hafði verið sagt frá því að vél flugfélagsins hefði flutt umdeilt vopn Landhelgisgæslunnar aftur til Noregs.
Um var að ræða 250 hríðskotariffla af gerðinni MP5 sem Gæslan fékk gegn vægu verði á síðasta ári, en um tíma töldu raunar forsvarsmenn hennar að þeir hefðu fengið vopnin endurgjaldslaust. Málið varð að miklu fréttamáli á síðasta ári.
Samkvæmt lögum er flugfélögum skylt að sækja um leyfi til þess að flytja hergögn, en slíkt leyfi fékkst ekki samkvæmt upplýsingum Samgöngustofu. Viðurlög við slíku broti eru allt frá sektum upp í fimm ára fangelsi.
Í Speglinum koma svör forsvarsmanna Icelandair fram, en þar sögðu þeir að þeir töldu að öll leyfi lægju fyrir í ljósi þess fyrir hvern væri verið að ferja vopnin. Það er aftur á móti flugfélaganna sjálfra að sækjast eftir slíkum leyfum, og þarf að gera það sjö dögum áður en flutningurinn fer fram.
Samgöngustofa rannsakar málið að því er fram kemur hjá Speglinum. Ekki er ljóst hvort málinu verður vísað til lögreglu, en þeir áttu að fá hluta af vopnunum sem var skilað, eftir að í ljós kom að vopnin voru ekki gjöf frá norska hernum eins og fyrst var álitið.