Flóasiglingar að hefjast á ný

Reykjavíkurborg og Akraneskaupstaður staðfestu í viljayfirlýsingu að skoða í sameiningu hvort flóasiglingar á milli borgarinnar og Akraneskaupstaðar geti verið valkostur í almenningssamgöngum.

Akraborgin var síðasti flóabáturinn sem sigldi á milli bæjarfélaganna. Báturinn hætti siglingum þegar Hvalfjarðagöngin voru opnuð árið 1998.

Könnun sýnir að áætlaður fjöldi farþega og þar með tekjur eru undir því sem þarf til þess að þessar flóasiglingar standi undir sér. Áætlaðar tekjur greiða heldur ekki stofnkostnað. Til að þetta beri sig þarf því umtalsverða utanaðkomandi niðurgreiðslu.

Jómfrúarferð nýs flóabáts verður á fimmtudag og áætlunarsiglingar hefjast næsta mánudag. Þetta er tilraunverkefni sem stendur í sex mánuði. Nokkrir stjórnmálamenn hafa sagt HRBR að ekki vilji þeir að fjármunir skattgreiðenda fari í verkefni af þessu tagi.

rtá