Fljúgandi hálka á þjóðvegum

Útlit er fyrir að veður kólni niður undir frostmark á láglendi síðdegis í dag og verður víða mjög hált á þjóðvegum landsins fyrir vikið, einkum á fjallvegum á borð við Bröttubrekku og Holtavörðuheiði. Stormurinn sem geysa mun á Snæfellsnesi undir kvöld nær að líkindum 40 m/s þegar mest lætur í hviðum. Ökumönnum er bent á að nota sér þjónustu Vegagerðarinnar í síma 1777 eða á vegagerdin.is áður en lagt er í hann á milli staða.