Fljótsdalsstöð sem knýr aflvélar Kárahnjúkavirkjunar á Austurlandi fær afbragðseinkunn í alþjóðlegri úttekt á sjálfbærni og nýtingu vatnsafls, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsvirkjun í dag.
Þar kemur fram að nýverið hafi verið gerð úttekt á stöðinni á grundvelli hins alþjóðlega matslykils um sjálfbæra nýtingu vatnsafls (e. Hydropower Sustainability Assessment Protocol, HSAP) og hafi hún leitt í ljós að rekstur Fljótsdalsstöðvar er framúrskarandi hvað varðar sjálfbæra nýtingu vatnsafls og á mörgum sviðum þykja starfsvenjur í Fljótsdalsstöð þær bestu sem fyrirfinnast.
Niðurstöður úttektarinnar voru á þá leið að Fljótsdalsstöð uppfyllti kröfur um bestu mögulegu starfsvenjur (5 í einkunn af 5 mögulegum) í 11 flokkum af þeim 17 sem teknir voru til skoðunar. Í fjórum flokkum uppfyllir Fljótsdalsstöð kröfur um góðar starfsvenjur (4 í einkunn af 5 mögulegum) og í hverjum þeirra er aðeins eitt frávik frá bestu mögulegum starfsvenjum. Tveir flokkar áttu ekki við í þessari úttekt.
Í úttektinni, sem var afar viðamikil, voru teknir til nákvæmrar skoðunar 17 flokkar sem varða rekstur Fljótsdalsstöðvar og eiga að gefa mynd af því hversu vel starfsemin fellur að alþjóðlegum viðmiðum um sjálfbæra þróun. Sem dæmi um flokka má nefna samskipti og samráð, stjórnun á umhverfislegum og samfélagslegum þáttum, vatnsauðlindina, vinnuafl og vinnuaðstöðu, líffræðilegan fjölbreytileika og framandi tegundir ásamt rofi og setmyndun.
Úttektarstjórinn, Joerg Hartmann, er staddur hér á landi. Hann kynnir úttektina á Fljótsdalsstöð í höfuðstöðvum Landsvirkjunar á Háaleitisbraut í dag, miðvikudaginn 24. janúar, kl. 15.00 og geta fjölmiðlar rætt við hann (sjá neðar um Joerg).