Þegar nokkur hundruð manns hafa tekið þátt í könnun Nútímans um hver eigi að verða næsti forseti Íslands vekur athygli að Bergþór Pálsson mælist með meiri stuðning en sitjandi forseti, Ólafur Ragnar Grímsson. Þorgrímur Þráinsson er með um tvöfalt færri atkvæði en Bergþór.
Nokkur hundruð manns hafa greitt atkvæði í netkönnun Nútímans þar sem gefnir kostir eru: Bergþór, Halla Tómasdóttir, Hrannar Pétursson, ÓRG, Sturla Jónsson, Þorgrímur, Ómar Valdimarsson og einhver annar eða einhver önnur.
„Einhver önnur“ fékk flest atkvæði framan af, tæplega fimmta hvert, en eftir því sem liðið hefur á könnunina sækir Bergþór í sig veðrið
Bergþór Pálsson er einu prósenti vinsælli en Ólafur Ragnar en atkvæði dreifast nokkuð.
Taka skal fram að könnunin er óvísindaleg, ekki er um slembiúrtak að ræða eða er öðrum aðferðafræðilegum háttum fylgt sem gerðar eru kröfur um og varða marktækni og áreiðanleika en e.t.v. gefur mælingin þó áhugaverða vísbendingu.
Uppfært kl. 07.20, 18.12: Eftir að fréttin var skrifuð og birt hefur fylgi Ólafs Ragnars tekið stökk skv. könnuninni og er hann nú með 23% gegn 19% prósentum Bergþórs.