Yfir 80 aðspurðra styðja kröfu verkalýðsfélaganna um 300 þúsund króna lágmarkslaun til handa því fólki sem stendur lægst í launastiganum hér á landi. Innan við fimmtingur er andvígur því að stíga það skref.
Þetta er niðurstaðan úr óformlegri viðhorfskönnun sem verið hefur á forsíðunni á hringbraut.is síðustu daga. Þar var spurt: Viltu að lágmarkslaun á Íslandi verði hækkuð í 300 þúsund krónur? Greinilegt er að almennur vilji er til að hækka lágmarkslaunin sem þessu nemur.
Lágmarkslaun á Íslandi eru nú 201,317 krónur. Samkvæmt framfærsluviðmiði stjórnvalda getur einn maður á Íslandi, barnlaus, lifað á 135 þúsund krónum, ef undan er skilinn húsnæðis- og fararkostnaður.
Deilan um lágmarkslaun hefur litað mjög kjaraumræðuna á Íslandi undanfarnar vikur og mánuði og virðist krafan um 300 þúsund króna laun vera forgangsatriði hjá stéttarfélögum. Samtök atvinnurekenda telja hægt að ná þessu markmiði á þremur árum.
Spurningin er hvort sú biðlund er fyrir hendi.