Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra ríður ekki feitum hesti frá gjörðum sínum í Evrópusambandsmálum ef marka má nýja könnun Fréttablaðsins um ánægju fólks með störf hans fyrir rífri viku þegar hann afhenti forkólfum sambandsins bréf um slit á viðræðum, sem þó virðist ekki hafa breytt neinu um stöðu Íslands gagnvart ESB að mati sambandsins sjálfs.
Af þeim sem tóku afstöðu í könnun blaðsins segjast 44% vera mjög ósátt með vinnubrögð Gunnars Braga, 19% frekar ósátt, en einungis 15% mjög sátt við þau. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tók afstöðu er því andvígur háttalagi ráðherrans í þessu umdeilda máli sem virðist ekki hafa skilað öðru til íslenskrar þjóðmálaumræðu en frekari átakamenningu í stjórnmálum, eins og Grétar Þór Eyþórsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri orðaði það við hringbraut.is í lok síðustu viku.