Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) lýsir stuðningi við frumvarp sem kveður á um að dagvinnutími verði styttur í 35 stundir á viku. Þetta kemur fram í umsögn bandalagsins sem send hefur verið Alþingi.
Lögð er áhersla á að breyting af þessu tagi verði ekki til þess að skerða kjör. Þá er á það bent að ekki aðeins mun stytting vinnuvikunnar auka lífsgæði fólks heldur er jafnframt mikilvægur þáttur í að fyrirbyggja örorku. Aðeins tvö prósent örorkulífeyrisþega hafa meðfæddar skerðingar.
Bent er á að önnur ríki á Norðurlöndum, Svíþjóð, Danmörk og Noregur, hafi fyrir nokkru innleitt 35 stunda viku. Þessar þjóðir eru ofar en við Íslendingar á lista yfir jafnvægi milli vinnu og frítíma. Þá er framleiðni meiri í þessum löndum en hér.
Í rannsókn sem unnin var af Rannsóknasetri í fötlunarfræði við HÍ kemur fram að langflestir örorkulífeyrisþegar eru fólk sem komið er yfir miðjan aldur og er slitið eða óvinnufært af álagi, sjúkdómum eða slysum. Örorkulífeyrisþegum fjölgar eftir miðjan aldur, ekki síst vegna stoðkerfissjúkdóma og þar eru konur í miklum meirihluta, sem eru líkamlega slitnar af vinnuálagi.
Nánar má sjá umsögn ÖBÍ hér