Það getur greinilega verið vænlegt til árangurs að bregða sér í hlutverk annarra en meirihluti þeirra leikara sem fengu tilnefningu til Óskarsverðlauna í dag lék hlutverk sem eiga sér fyrirmyndir í raunveruleikanum. Kvikmyndirnar The Favourite og Roma fengu flestar tilnefningar, tíu hvor.
Roma er óður leikstjórans Alfonsos Cuarón til uppvaxtaráranna í Mexíkóborg. Hún er tilnefnd sem besta myndin og besta erlenda myndin og er auk þess fyrsta myndin sem framleidd er fyrir Netflix sem tilnefnd er til Óskarsverðlauna í þessum flokkum.
Þrettán af þeim 20 leikurum og leikkonum sem komust á blað í dag eru tilnefnd fyrir hlutverk sem eiga sér stoð í raunveruleikanum.
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/flest-hlutverkin-eiga-raunverulega-fyrirmynd