Flensa og niðurgangur færist í vöxt

Bæði Inflúensa A og B breiðast út í samfélaginu þessar vikurnar að því er fram kemur á vef Landlæknis í dag og er hún oftast staðfest hjá fullorðnum og öldruðum.

Þar segir að á sama tíma og inflúensan færist í vöxt í samfélaginu hafi ekki orðið samsvarandi aukning á innlögnum á Landspítala af völdum inflúensunnar. RSV-öndunarfæraveiran breiðist enn út, samkvæmt sama vef og greinist oftast hjá ungum börnum og öldruðum einstaklingum.

Þá hefur talsvert verið um niðurgang samkvæmt tilkynningum frá heilsugæslunni og bráðamóttökum, en algengasti sýkingarvaldurinn þar hefur verið rótaveira, einkum hjá ungum börnum.,