Hinn hálfdanski Íslendingur, Þorvaldur Flemming Jensen grillar af mikilli list í þættinum Grillspaðanum sem er á dagskrá Hringbrautar í kvöld, en þar sýnir hann áhorfendum hvernig matbúa á Rib eye og hversu þykkar sneiðarnar eiga að vera.
Þorvaldur er alveg með þetta á hreinu og segir þykktina skipta miklu máli þegar Rib eye er sett á eldheita teinana - og bendir þar meðal annars á alþjóðlega reglu sem viðmiðun. Þá sýnir hann hvernig búa á til gott kryddsmjör en þar notar hann ákveðið leynivopn, \"gastrik“ sem hann hafði meðferðis frá Danmörku til að auðga matargerðina.
Þorvaldur Flemming er landskunnur fyrir skemmtilega útvarpspistla frá Danmörku þar sem hann hefur búið á þriðja áratug og auk þess hefur hann verið veislustjóri hjá fjölmörgum árshátíðarhópum sem heimsótt hafa Höfn á undanförnum árum.
Það er alltaf stutt í húmorinn hjá karli og því góð skemmtun að fylgjast með honum í þætti kvöldsins þar sem hann verður gestur þáttastjórnandans Sigurðar K. Kolbeinssonar.
Grillspaðinn er á dagskrá Hringbrautar alla miðvikudaga í sumar klukkan 21:45 en þar er grillað með þekktum Íslendingum á einfaldan og skemmtilegan hátt.
Klippur úr þættinum má sjá hér.