Fleiri vilja spítalann annars staðar

47 prósent þeirra sem taka afstöðu telja að nýr Landspítali eigi ekki að rísa á núverandi stað við Hringbraut, en 39 prósent segja að spítalinn eigi að rísa við Hringbraut.

Þetta eru niðurstöður skoðanakönnunar sem Fréttablaðið og frettabladid.is gerðu í byrjun vikunnar. 13 prósent segjast vera hlutlaus í málinu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins segir að þetta komi ekkert á óvart. „Ég efast um að það sé nokkurt annað mál sem ég hef beitt mér fyrir í pólitík sem fær önnur eins viðbrögð og þetta mál.“ 

Andstaða við að spítalinn rísi við Hringbraut er meiri meðal þeirra sem eru 50 ára og eldri en þeirra sem yngri eru. Andstaðan er líka meiri meðal karla en kvenna.“