Fleiri verslanir hækka byssukaupaaldur

L.L. Bean hefur bæst í hóp þeirra verslana sem hafa ákveðið að hætta að selja byssur til fólks yngra en 21 árs. Fyrr í vikunni tilkynntu tvær stórar verslanakeðjur, Dick’s Sporting Goods og Walmart slíkt hið sama.

Í Twitterfærslu L.L. Bean í gær segist fyrirtækið hafa endurskoðað reglur sínar um byssusölu í kjölfar skólamorðanna í Florida og ákveðið að hækka byssukaupaaldurinn í kjölfarið.

Trump, Bandaríkjaforseti, sem talaði all fjálglega um takmarkanir á byssueign á fundi með þingmönnum í Hvíta húsinu í vikunni, settist niður með fulltrúum NRA í gær. Eftir þann fund sagði einn helsti talsmaður samtakanna að forsetinn og Mike Pence varaforseti vildu hvorugur takmarka byssueign.