12,6 prósent leikskólabarna hafa erlent móðurmál. Árið 2016 voru 19.090 börn í leikskólum á Íslandi. Í grunnskólum voru 44.527 nemendur
Meðal leikskólabarna í hitteðfyrra voru 12,6 prósent með erlent móðurmál og 9,3 prósent barna í grunnskólum. Til samanburðar má geta þess að árið 1998 voru 3,8 prósent leikskólabarna með erlent móðurmál og 1,8 prósent. grunnskólabarna. Stærstu hóparnir á báðum skólastigum voru með pólsku sem móðurmál.
Þetta kemur frá á vef Hagstofunnar sem nú í fyrsta sinn birtir hagtölur sem sérstaklega varða stöðu barna í samstarfi við Umboðsmann barna.