Fleiri taka í vörina

Aukning síðustu ára í neyslu á tóbaki í vör hér á landi einkum í hópi ungra karlmanna hefur verið áhyggjuefni, segir í umfjöllun Landlæknisembættisins um tóbaksnotkun hér á landi. Dagleg notkun í aldurshópnum 25 – 34 ára karla jókst úr 7 prósentum 2015 í 22 prósent á þessu ári. 

Einnig verður vart við aukna notkun á tóbaki í vör meðal ungra kvenna, áður mældist hún óveruleg en er nú 3 prósent í aldurshópnum 18 til 24 ára og rúmlega 2 prósent í aldurshópnum 25 til 34 ára.

Þeim sem taka tóbak í vör hefur fjölgar um 3.100 manns frá árinu 2015.

Dagleg notkun tóbaks í vör jókst úr 3 prósentum árið 2015 í 5 prósent árið 2018 á meðal beggja kynja 18 ára og eldri. Dagleg notkun tóbaks í vör dróst þó saman hjá yngsta aldurshóp karla, 18–24 ára, fór úr 23 prósent árið 2015 í 14 prósent í ár.

Á meðan daglegar reykingar dragast saman fjölgar þeim sem taka tóbak í vör og þeim sem nota rafrettur daglega hefur fjölgað um 9.200 á undanförnum þremur árum.

\"\"