Fleiri stíga fram vegna jóns baldvins

Í nýjasta tölublaði Stundarinnar, sem kom út á föstudaginn, stigu fjórar konur fram og lýstu kynferðislegri áreitni af hendi Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi ráðherra og sendiherra. Í kjölfarið hafa fleiri konur stigið fram, bæði undir nafni og í skjóli nafnleyndar.

Margrét Schram, systir Bryndísar Schram eiginkonu Jóns Baldvins, segir í viðtali við Stundina að hann hafi komið nakinn upp í til sín þegar hún var í heimsókn hjá hjónunum á menntaskólaaldri. Hún hafi lagst til hvílu og vaknað upp við mág sinn undir sæng með sér allsnakinn. Hún hafi svo lamið og sparkað í hann þar til hann hörfaði.

Aldís Schram, dóttir Jóns Baldvins og Bryndísar, er einnig í viðtali við Stundina, þar sem hún vísar á bug fullyrðingum Jóns Baldvins um að ásakanir hinna ýmsu kvenna á hendur honum eigi sér rætur að rekja til ásakana Aldísar um kynferðisbrot af hendi Jóns Baldvins í hennar garð. Samkvæmt Vísi.is á Jón Baldvin meðal annars að hafa otað kynfærum sínum að andliti hennar þegar hún var fimm ára gömul.

Aldís var nauðungarvistuð sex sinnum á geðdeild frá árinu 1992, alltaf fyrir tilstilli Jóns Baldvins að hennar sögn. Með það fyrir augum að bera hönd fyrir höfuð sér og kveða niður það sem hún kallar vísvitandi lygar hans um hennar meintu geðveiki, birti hún vottorð frá Dr. Gunnari Hrafni Birgissyni og Dr. Jörundi Kristinssyni heimilislækni, þar sem hið fyrra greinir frá því að hún hafi ekki sýnt nein merki um geðhvarfasýki og hið síðara að engin einkenni geðsjúkdóms hafi komið fram við nokkurt tilfelli.

DV.is greinir frá nafnlausri frásögn úr sérstökum MeToo Facebook hópi vegna Jóns Baldvins. Þar lýsir kona samskiptum við Jón Baldvin þegar hún var 18 ára nemandi við Menntaskólann á Ísafirði og hann skólameistari. Hann hafi í eitt sinn faðmað sig, kysst og stungið fingri upp í leggöng sín. Hann hafi svo gefið henni skáldsöguna Lolita, sem fjallar um miðaldra mann sem verður gagntekinn af barnungri stúlku.

Greint er frá annarri sögu af Ísafirði í Stundinni í dag, þar sem Sigríður Hulda Richardsdóttir segir frá því hvernig Jón Baldvin hafi í dimission ferð nemenda synt nakinn að þeim í sundlaug. Hann hafi káfað á brjóstunum á sér og áreitt nemendur kynferðislega. Mikið hafi verið um ölvun kennara í ferðinni. Frásögn Sigríðar af atburðum dagsins staðfesta þrjár skólasystur sem voru í sömu ferð.

Samkvæmt Vísi.is eru nú á annað hundrað meðlimir í Facebook hópnum „#metoo Jón Baldvin Hannibalsson,“ en þeir voru að nálgast tuttugu þegar Stundin greindi fyrst frá. Guðrún Harðardóttir, ein af þeim sem steig fram í umfjöllun Stundarinnar og hafði áður greint frá óviðeigandi bréfaskrifum Jóns Baldvins, stofnaði hópinn á þriðjudaginn, þar sem konur lýsa áreiti af hendi Jóns Baldvins.