Fleiri skrifa lífssögu sína

Meðal þeirra fjölmörgu sem taka þátt á Fundi fólksins eru Landssamtökin Þroskahjálp sem eru 40 ára í ár.

Í tilefni af afmælinu verður sýnd ný 70 mínútna heimildarmynd eftir Pál K. Pálsson á Fundi fólksins í Norræna húsinu. Myndin nefndist Halli sigurvegari, og lýsir einstökum manni með mikla fötlun og lífshlaupi hans. Halli ólst upp á Kópavogshælinu sem svo hét og varð viðskil við móður sína tveggja ára þegar hún lést ung að árum.

Guðrún V. Stefánsdóttir doktor í fötlunarfræðum og dósent við Háskóla Íslands, og María Hreiðarsdóttir sem hefur á margvíslegan hátt barist fyrir réttindum fólks með þroskahömlun koma fram undir merkjum félagsins, á dagskránni á morgun. Þær munu sitja í pallborði.ásamt Haraldi Ólafssyni eða Halla, 

María ætlar til dæmis að svara spurningum um hvers vegna hún situr nú við að ljúka við að skrifa lífssögu sína. Guðrún sendi fyrir nokkrum árum frá sér margar þannig sögur. Í doktorsritgerði sinni ræddi Guðrún við átta einstaklinga með þroskahömlun og fæddust fyrir árið 1950.

Guðrún segir í viðtali á Hringbraut í kvöld að líffsöguformið sé mikilvægt til að rödd sjálfra einstaklinganna heyrist sem vanalega er fjalla um af öðru fólki, s.s.fræðimönnum, sérfræðingum og fjölmiðlum. María, sem er 46 ára segir á Hringbraut í kvöld að Freyja Haraldsdóttir hafi verið sér mikil hvatning til að skrifa sögu sína og að það sé þörf á að fleira fólk með þroskaskerðingu geri sig sýnilegt, til dæmis með þeim hætti. María vonast til að saga sín geti m.a. nýst innan háskólans.

Umræðurnar verða á morgun, föstudag 2.sept klukkan 15 til 15.30 og myndin um Halla verður sýnd þar á eftir.