Fleiri fylgjandi upptöku evru en á móti

Alls segj­ast 43 pró­sent þeirra lands­manna sem taka afstöðu gagn­vart því hvort Ísland eigi að sækja um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu (ESB) að nýju. Stuðn­ing­ur­inn hefur auk­ist um tvö og hálft pró­sentu­stig á einu ári. Það þýðir að 57 pró­sent lands­manna sem taka afstöðu eru á móti aðild. Þetta er nið­ur­staða nýrrar könn­unar sem Gallup gerði fyrir sam­tökin Já Ísland.

Þar kemur fram að yngsti ald­urs­hópur lands­manna, 18 til 24 ára, er sá sem er lík­leg­astur til að kjósa með aðild ef það yrði gert í dag, en 49 pró­sent aðspurðra í þeim hópi sögð­ust vera fylgj­andi aðild.

Þeim sem vilja taka upp aðild­ar­við­ræður að nýja fjölgar líka og nú segj­ast 40 pró­sent allra sem svör­uðu því ját­andi. Rúm­lega 44 pró­sent voru and­vígir því að hefja við­ræður að nýju og um 15 pró­sent sögð­ust vera hlut­laus­ir.

Nánar á

https://kjarninn.is/frettir/2018-10-04-alls-57-prosent-moti-adild-ad-esb-fleiri-fylgjandi-upptoku-evru-en-moti/