Fleiri ferðamenn en gistinætur

Tölur um fjölda ferða­manna og skráðar gistinætur hald­ast ekki í hendur líkt og raunin hefur verið.

Í ályktun stjórnar SAF segir að tölur hafa verið samræmdar undanfarin tvö ár en nú sé munur á.  Ferða­mönnum fjölgaði til lands­ins um rúm­lega helm­ing á fyrsta fjórð­ungi árs­ins miðað við sama tíma­bil í fyrra, eftir talningu Ferðamálastofu. Á sama tíma fjöldi gistin­óttum aðeins um fjórðung.

Ástæðan fyrir ósamræminu er m.a. talin vera sú að mikil aukn­ing hefur orðið á heimagist­ingu, en einnig að upp­lýs­ingar um gistinætur ná ein­vörð­ungu utan um gistinætur á hót­elum sem opin eru allt árið.

Mark­aðs­stofur lands­hlut­anna hafa lengi barist fyrir því að töl­fræði­legar upp­lýs­ingar verði efldar í hverjum lands­hluta. 

Einnig er áætlað að ferða­mönnum sem fara aldrei út úr Leifs­stöð fari fjölgandi. Þannig fari fleiri út úr komusalnum með farangurinn og inn­rita sig aftur fyrir seinni legg­inn á leið sinni yfir haf­ið. Talning ferðamanna fer í gegnum vopna­leit en í hana fara líka þeir sem einungis millilenda í Leifsstöð.