Fleiri ánægðir með órg en óánægðir

47,8% landsmanna eru ánægðir með störf for­set­ans en 26,9 óánægðir. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR en ánægja með störf forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, er í lágmarki þetta árið miðað við fyrri mælingar.

Spurt var: Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með störf Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta Íslands? 
Svarmöguleikar voru: Mjög óánægð(ur), frekar óánægð(ur), hvorki ánægð(ur) né óánægð(ur), frekar ánægð(ur) og mjög ánægð(ur), Veit ekki/vil ekki svara.

Í úrtaki voru einstaklingar á aldrinum 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa.