Flaug til íslands með 170 kíló af íslensku klínki: arion-banki kallaði til lögreglu - borgar ekki krónu fyrir myntina

Wei Li flaug til Íslands í síðustu viku með 170 kíló af íslenskri mynt. Andvirðið var 1,6 milljónir króna. Þetta er í þriðja sinn sem Li ferðast með tugi kílóa af íslenskri mynt til landsins. Í fyrstu tvö skiptin gekk allt eins og í sögu en í þriðja skiptið neitaði bankinn að skipta myntinni og kallaði til lögreglu.

Í samtali við Fréttablaðið segir Li að sumir peningarnir séu heilir, aðrir talsvert skemmdir og einnig eru dæmi um að þeir séu nánast skornir í tvennt. Fyrirkomulagið er þannig að hann borgar ekki krónu fyrir myntina nema ef honum tekst að skipta henni hérlendis. Þá fær myntbraskarinn sanngjarnan hlut. Li segir í samtali við Fréttablaðið:

„Ég fæ myntina frá myntbraskara úti í Kína. Ég veit ekki hvaðan allt kemur en hluti kemur frá endurvinnslufyrirtæki sem kaupir samanpressaða bíla frá Íslandi. Þar leynist mikið af mynt.“

Hann fór fyrst í Seðlabankann en þar var honum vísað frá, þá gerði hann sér ferð í Arion-banka en eftir aðeins nokkrar mínútur mættu átta lögregluþjónar á vettvang.

Li hefur tvisvar áður komið til landsins í þessum sama tilgangi, að skipta íslenskri mynt. Ágóðann hefur hann m.a. notað til að ferðast um Íslands.

Nánar er fjallað um málið í Fréttablaðinu.