Bilun varð í lendingarbúnaði Bombardier-vélar Flugfélags Íslands í dag og var ákveðið að lenda í Keflavík í stað Reykjavíkur. Lendingin tókst vel.
Bombardier-vélin er nýkomin í flota FÍ. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingmaður var farþegi í vélinni. Segir hún að flapsar í vængjum hafi bilað. Farþegum hafi ekki verið skemmt en lendingin gengið vel þótt athygli farþega hefði vakið hve flugmennirnir neyddust til að lenda henni á mikilli ferð.
Mbl. segir að Bombardier-vélin sé ein af þremur nýjum flugvélum sem Flugfélag Íslands keypti frá SAS fyrir skömmu. Flugvélarnar hafi verið kyrrsettar af SAS árið 2007 vegna vandamála með lendingarbúnað.