Flaggað vegna fórnarlambanna

Auður Magndís Auðardóttir, framkvæmdstjóri Samtakanna 78 segir að árásin í Orlando Flordia í gærmorgun hafi vakið upp mikla umræðu þvert á landamæri um stöðu hinsegins fólks. Í gækvöldi héldu samtökin fjölmenna minningar- og friðarstund saman í Úteyjar minningarlundinum í Vatnsmýrinni. Tendruð voru ljós til minningar fórnarlamba árásarinnar og veitti fólk hvort öðru von og samstöðu. Auður Magndís verður gestur á Hringbraut í kvöld.

Víða um heim ríkir sorg vegna árásarinnar í Orlandi í Flórída í gærmorgun. 50 létust og yfir fimmtíu eru særðir. Hér heima hefur Reykjavíkurborg flaggað regnbogafánanum, tákni margbreytileikans. Eiffelturninn er lýstur upp í regnbogalitunum í kvöld og þá hafa Skotar hafa flaggað regnbogafánanum í hálfa stöng fyrir framan opinberar byggingar til minningar um fórnarlömb skotárásarinnar.