Fka og rúv leita að konum í fjöl­miðla­þjálfun

Fé­lag kvenna í at­vinnu­lífinu og ríkis­út­varpið leita nú að konum sem eru til­búnar til þess að mæta í eins dags hag­nýta fjöl­miðla­þjálfun þann 8.febrúar næst­komandi í húsa­kynnum RÚV í Efsta­leiti. Þetta kemur fram á vef­síðu FKA.

Þar kemur fram að verk­efninu sé ætlað að auka fjöl­breytni við­mælenda í ís­lenskum fjöl­miðlum og bæta að­gengi fjöl­miðla­fólks að konum með sér­þekkingu sem al­gengt sé a ð­skorti þegar leitað er að við­mælendum í fréttir og frétta­tengda þætti. Þá kemur starfs­fólk Stöðvar 2 og Hring­brautar að fram­takinu að þessu sinni.

Leið­bein­endur eru Þór­hallur Gunnars­son, fjöl­miðla­maður og Andrés Jóns­son al­manna­tengill. Einnig koma Sirrý Arnar­dóttir stjórn­enda­þjálfari, há­skóla­kennari, rit­höfundur og fyrr­verandi fjöl­miðla­kona og Eva Lauf­ey Kjaran Her­manns­dóttir, sjón­varps­kona hjá Stöð 2, ást­ríðu­kokkur og bóka­út­gefandi að þjálfuninni. Þátt­tak­endur fá einnig tæki­færi til að hitta og spjalla við Berg­stein Sigurðs­son og Huldu Geirs­dóttur, fjöl­miðla­fólk á RÚV.

FKA gerði könnun meðal frétta- og dag­skrár­gerðar­manna í frétta­tengdum þáttum á ljós­vaka­miðlum RÚV, Stöðvar 2 og Hring­braut. Spurt var hvort erfiðara væri að finna konur sem við­mælendur á ein­hverjum til­teknum sér­sviðum . Níu sér­svið voru oftast nefnd. Sjávar­út­vegur og tækni­mál voru þar efst á blaði, auk upp­lýsinga­tækni, upp­lýsinga­öryggis, orku­mála, í­þrótta, við­skipta, ný­sköpunar, vísinda og stjórn­mála. Því er leitað að einni konu með sér­þekkingu á hverju af þessum sjö sviðum, en tveimur til þremur konum í sjávar­út­vegi og tækni­málum.

Tekið er fram að ekki sé skil­yrði að vera fé­lags­kona í FKA til að fá að­gang að verk­efninu.

Skil­yrðin sem þarf að upp­fylla til að fá að­gang að fjöl­miðla­þjálfuninni eru eftir­farandi:

1) Vera laus til að taka þátt í þjálfuninni þann 8. febrúar 2020 frá kl. 8:30 til kl. 18:00.

2) Vera til­búin til að deila reynslu sinni af fjöl­miðla­þjálfuninni með FKA-konum á „Sýni­leika­degi FKA“ sem haldinn verður 28. mars 2020.

3) Hafa á­huga á að mæta í við­töl í sjón­varpi og út­varpi þegar eftir því er leitað.

4) Vera í sjálf­stæðum rekstri eða gegna stöðu stjórnanda eða milli­stjórnanda hjá fyrir­tæki eða opin­berum aðila.

5) Hafa sér­þekkingu á einni af þeim greinum sem taldar eru upp hér á eftir:

a) Upp­lýsinga­tækni (t.d. staf­ræn þróun, fjórða iðn­byltingin, sjálf­virkni­væðing, notkun gervi­greindar o.fl.).

b) Upp­lýsinga­öryggi (t.d. á­rásar­varnir eða á­rásar­prófanir á upp­lýsinga­kerfi o.fl.).

c) Sjávar­út­vegur.

d) Orku­mál (t.d. jarð­hiti, orku­skipti o.fl.).

e) Í­þróttir (t.d. keppnis­í­þróttir, jaðar­sport, þjálfun o.fl.).

f) Við­skipti (t.d. fjár­mála­markaðir, verð­bréfa­við­skipti, hag­fræði, hluta­bréfa­markaðir, þróun vaxta og verð­bólgu).

g) Ný­sköpun (t.d. startup-fyrir­tæki, við­skipta­hraðlar, fjár­mögnun, hug­mynda­vinna, fræðsla um ný­sköpun o.fl.).

h) Vísindi (t.d. lækna­vísindi, reynsla af stórum al­þjóð­legum rann­sóknar­verk­efnum, þróun mann­kyns og vísinda o.fl.).

i) Stjórn­mál (t.d. al­þjóða­stjórn­mál, inn­lend stjórn­mál, sér­tæk þekking á stjórn­málum til­tekinna þjóða eða heims­álfa).

Ef þú upp­fyllir framan­greind skil­yrði skaltu fylla út um­sókn um þátt­töku í þjálfunar­prógramminu á­samt upp­lýsingum um próf­gráðu, reynslu og nú­verandi starf.